Monday, January 10, 2011

2 dagar til brottfarar

Kaeru vinir!

Gledilegt árid.

Sídustu dagar hérna í Ungverjalandi eru bunir ad vera frábaerlega reynslurikir og skemmtilegir. Sidustu viku eyddi ég sem túristi í Búdapest, fór um allt, skodadi litla baei i nagrenni borgarinnar, og kíkti svo á söfn, listasyningar og kirkjugarda i stórborginni.
Á fimmtudag kíkti ég til László, thvodi af mér föt, og vid plönudum ferdalag. Fundum ódyra bílaleigu og sváfum. Daginn eftir sóttum vid bílinn, komumst ad thvi ad adalkostnadur yrdi bensín. Vid leigdum 18 ára vínraudan ópel á 5000 kall yfir helgina. Lögdum af stad - keyrdum hingad og thangad, skodudum landslag sem var ad mestu thokukennt og blautt, keyrdum yfir til Slóvakíu og eyddum um thad bil 15 mínútum thar - keyrdum aftur til Ungverjalands, upp í fjöllin, stoppudum í veidiskálathorpi og gengum upp á fjall í thykkum skóginum í kolnidamyrkri. Svaedid er víst stútfullt af villisvínum og elgum, en vid hittum engin á för okkar- sáum bara fullt af sporum. Fljótlega fórum vid ad sjá stjörnurnar, en hins vegar haettum vid ad sjá göngustíginn. Thegar vid vorum hálfnadir upp á toppinn (thad var fjallstoppur i midjum skoginum) komumst id ekki lengra. Engar fleiri stikur sjáanlegar, og okkur leist ekkert á ad villast í dimmum skóginum med göltunum og kúnum. Thannig ad - vid héldum heim (í bilinn). Sváfum thar (ekki svo) vaerum svefni, og héldum áfram daginn eftir. Skodudum fleiri thokufyllta fjallstoppa, gamla kastalabaei og annad thviumlikt. Laszló syndi mér thorpid sem foreldrar hans fóru í brudkaupsferd. Gullfallegur kastalabaer med litlum fossi sem haegt er ad labba bakvid - allavega ad vetri til - og thad var ótrúleg sjón! Med theim fallegustu í ferdinni..! Helmingur fosssins var frosinn svo ad vid löbbudum medfram risastórum grylukertum - hefdi ekki verid gott ad fá eitt theirra i hausinn.
Thessari nótt eyddum vid á bílastaedi fyrir framan kastala. Besta útsyni sem ég hef haft frá svefnherbergisglugga - ekki vodalega mikid naedi samt. Thetta var á laugardagsnóttu thannig ad vid vöknudum um midja nótt thegar vid fengum nágranna sem voru ad halda eitt lítid "Bílarave" - sem thydir dynjandi bassi og hörd áfengisdrykkjukeppni í um thad bil klukkustund. En ég svaf vaert. Betur en daginn ádur í ísköldu veidimannathorpinu.

Byrjudum daginn á badi í Miskolc, í nátturuhellum thar - sem er buid ad breyta í "audlind" med tilheyrandi midasölum og nuddpottum. Héldum svo nordur, og fengum okeypis ferd um staersta helli Ungverjalandi (í Aggtelek. Eldgamall dropasteinshellir sem liggur milli Ungverjalands og Slóvakíu. Vid fórum med vinkonu Laszlós, en pabbi hennar vann sem leidsögumadur í hellinum. Hún sagdi mér ad afi hennar og amma hefdu falid sig tharna fyrir Sovíetmönnum í seinni Heimstyrjöldinni í tvaer vikur.

Eftir thetta keyrdum vid lengra austur og endudum aftur hjá foreldrum Lászlós. Thar fengum vid audvitad hlyjar móttökur og fullt af gódum mat, mjúkt rúm og dágódan nestispoka daginn eftir.

Hér er ég, kominn aftur, og tharf ad byrja ad pakka. Saeki hjólid mitt i vidgerd á eftir og fae naest sidasta kaffibollann af besta kaffi í Búdapest.

Hafid thad sem best!

Kv. Viktor.

Wednesday, December 22, 2010

Boldog Karácsonyt Kívánok!

Sziasztok!


So - Im in Nyíregyháza now. Dont know why Im reading in English, but I thats what came out of my fingers... ...

Anyway. Skólinn er búinn. Jólin eru ad koma. Ég hlakka til ad eyda theim hérna med gódu fólki í Austur-Ungverjalandi. Ég vona ad thid hafid thad gott heima á Íslandi! Slátra svíni á morgun.

Sjáumst á nyju ári!

kv. Viktor.

Monday, December 6, 2010

Ninc miről hozza írní.


Hei hó!


Langt er nú síðan ég hef skrifað eitthvað hér. En ég skrifa þó! jæja, hvernig hafiði það? Um helgina fór ég í heimsókn til fjölskyldu Emese (meðleigjanda míns) út á land - eða tjah, 40 mínútna lestarferð frá Búdapest. Það var frábært að komast út úr borginni aðeins, eins og alltaf. Þau eru með tvo hunda og tvo ketti úti hjá sér allan ársins hring, og systir Emese á boga! Ég fékk að prófa í frostinu í gær. Puttarnir duttu næstum því af, en það var ótrúlega gaman að prófa. Hún hrósaði mér líka fyrir að vera fær Bogamaður!
Jæja, Við borðuðum góðan mat og áttum góðar stundir.


Nú er ein og hálf vika eftir af skólanum. Ég þarf að klára verkefnin mín núna og svo hef ég frí í einn mánuð! Hlakka til - að slátra svíni á Þorláksmessu, eyða jólunum með Antal fjölskyldunni - ferðast meira um landið - og jafnvel til nágrannalanda líka!


Svo er bara planið að koma heim eftir einn og hálfan mánuð! Hlakka til að koma heim - en hlakka meira til að komast í frí hér og gera .... allt og ekkert. njóta þess að vera í Ungverjalandi.


Jæja, best að koma sér að verki.


Segíts magadon, Isten is megsegít


Viktor.

Monday, November 22, 2010

Ungverskar afmaelisveislur!

Hae hó..!

Fór á landbúnadarsafnid í gaer - og skodadi uppstoppud dyr, dyraskúlptúra - laekningajurtir frá strídsárunum og beinagrindur -- Eitt herbergid var svo fullt af dyrahausum - Dádyrum med risahorn, elgum, Villisvínum og ödru... fíú!

Stud. Fór svo til Laszló, eldadi fyrir hann, bródur hans og kaerustu (brodur hans) svínakjöt med gulrótum - einhvers konar útgáfu af rétt sem ég laerdi ad elda hjá Nikolas félaga mínum á seydisfirdi...! Takk Nikki!

OG - thvodi fötin min og horfdi á Friends og Wall-E - á Ungversku!

já. Eldadi svo ofan í teiknikennarann minn og vinkonu í kvöld - mín ungverska útgáfa af spaghetti bolognese a la Apu - (pabbi) og féll vel  kramid á fólki.

Mér finnst gaman ad elda.

Góda nótt.

Wednesday, November 17, 2010

Læra læra læra

Teikning


Þó mér finnist ég stundum standa í stað hérna þá fattaði ég nú í vikunni að ég hef lært svo mikið. Ungverskan er komin á skrið, ég hef lært að teikna mun betur en ég gerði þegar ég kom - - Lært nýtt fólk að kenna (dönsk óverfærsla), og lært meira um sjálfan mig. Búinn að ferðast mikið með László félaga mínum og öðru fólki - - Gott mál.

Hér skín sólin. Dagarnir minna á heita Maídaga á Íslandi, en kólna svo hratt niður á kvöldin. Enginn sjór til að tempra veðrið. Svo eru Ungverjar líkir Íslendingum á margan hátt - kenna öllu um veðrið! Gaman að því. Mér líður oft ágætlega heima hérna, en á sama tíma algerlega "geimveraður" (alienated). Búdapest er grá. Maður fær frábæra first impression af borginni þegar maður kemur hingað fyrst - en svo fer maður að sjá fátæktina hérna - Ég man ekki eftir að hafa séð svona marga sofandi á götuhornum - allan ársins hring. Það er mikil stéttaskipting hérna líka. Eins og annars staðar í heiminum (fyrir utan Ísland) Er mcDonalds á hverju götuhorni - og svo liggur einn til fimm heimilislausir einstaklingar undir þaki hinum megin við götuna.

Jæja - Hér er ég. Ég ætla að njóta þess!

Jó napot kivánok!

V

Monday, November 8, 2010

Szentendrei

Ég byrjaði daginn í gær á því að heimsækja spænskan skólafélaga minn. Meðleigjandi hennar er indverskur New York búi sem er að læra lækninn í Búdapest - og auðvitað hefur hún íslenskan skólafélaga. Mamma hennar var í heimsókn og bauð okkur í indverskan brunch - ótrúlega góður matur. Við áttum mjög áhugaverðar samræður um tækifæri í heiminum og verkfræði ... Benti mér líka á að stofnandi Facebook er að gefa hverjum þeim sem hefur góða hugmynd (að hans mati líklega) 100 þúsund Dollara!

Eftir matinn fór ég með lászló í hjólatúr til Szentendrei  - fínasti dagtúr. Szentendrei er lítill gamall bær fyrir norðan Búdapest í 25 km fjarlægð. Hann á leiðinni heim heimsóttum við vinkonu hans í Új Pest sem ætlar að bjóða okkur í svínaslátrun á Þorláksmessu! Það hljómar eins og jólin verði mjög áhugaverð hérna í Magyarország.

Jæja. Hér sést enn enginn snjór. En - ný vika. ný ævintýri.

!

V

Tuesday, November 2, 2010

Zárgá Ösz

Haustid er heil árstíd herna í ungverjalandi. Annad en heima thar sem laufin gulna og falla á kannski tveimur vikum - hérna hefur allt verid frekar gult sidan um midjan september. Frekar ahugavert. Farid ad kolna adeins - en tho engir snjostormar eins og á fjardarheidi thessa stundina - fékk fréttir frá félaga minum frá Seydisfirdi...

Eg gekk um budapest med medleigjanda minum um helgina - hun talar ekki ensku og vid löbbudum lengi thannig ad eg var vel threyttur eftir daginn. Skaut medal annars ur boga thann daginn - og komst ad thvi ad mig langar ad laera thad meira.  frabaert sport..!

jaeja - eg hef verid frekar skriflatur upp a sidkastid og er thad enn.

Bestu kvedjur, Viktor P