Ég byrjaði daginn í gær á því að heimsækja spænskan skólafélaga minn. Meðleigjandi hennar er indverskur New York búi sem er að læra lækninn í Búdapest - og auðvitað hefur hún íslenskan skólafélaga. Mamma hennar var í heimsókn og bauð okkur í indverskan brunch - ótrúlega góður matur. Við áttum mjög áhugaverðar samræður um tækifæri í heiminum og verkfræði ... Benti mér líka á að stofnandi Facebook er að gefa hverjum þeim sem hefur góða hugmynd (að hans mati líklega) 100 þúsund Dollara!
Eftir matinn fór ég með lászló í hjólatúr til Szentendrei - fínasti dagtúr. Szentendrei er lítill gamall bær fyrir norðan Búdapest í 25 km fjarlægð. Hann á leiðinni heim heimsóttum við vinkonu hans í Új Pest sem ætlar að bjóða okkur í svínaslátrun á Þorláksmessu! Það hljómar eins og jólin verði mjög áhugaverð hérna í Magyarország.
Jæja. Hér sést enn enginn snjór. En - ný vika. ný ævintýri.
!
V
Er jólasteikin sveinehund í Ungaverjalandi?
ReplyDeleteneibb - fiskur!
ReplyDelete