Wednesday, November 17, 2010

Læra læra læra

Teikning


Þó mér finnist ég stundum standa í stað hérna þá fattaði ég nú í vikunni að ég hef lært svo mikið. Ungverskan er komin á skrið, ég hef lært að teikna mun betur en ég gerði þegar ég kom - - Lært nýtt fólk að kenna (dönsk óverfærsla), og lært meira um sjálfan mig. Búinn að ferðast mikið með László félaga mínum og öðru fólki - - Gott mál.

Hér skín sólin. Dagarnir minna á heita Maídaga á Íslandi, en kólna svo hratt niður á kvöldin. Enginn sjór til að tempra veðrið. Svo eru Ungverjar líkir Íslendingum á margan hátt - kenna öllu um veðrið! Gaman að því. Mér líður oft ágætlega heima hérna, en á sama tíma algerlega "geimveraður" (alienated). Búdapest er grá. Maður fær frábæra first impression af borginni þegar maður kemur hingað fyrst - en svo fer maður að sjá fátæktina hérna - Ég man ekki eftir að hafa séð svona marga sofandi á götuhornum - allan ársins hring. Það er mikil stéttaskipting hérna líka. Eins og annars staðar í heiminum (fyrir utan Ísland) Er mcDonalds á hverju götuhorni - og svo liggur einn til fimm heimilislausir einstaklingar undir þaki hinum megin við götuna.

Jæja - Hér er ég. Ég ætla að njóta þess!

Jó napot kivánok!

V

No comments:

Post a Comment