Langt er nú síðan ég hef skrifað eitthvað hér. En ég skrifa þó! jæja, hvernig hafiði það? Um helgina fór ég í heimsókn til fjölskyldu Emese (meðleigjanda míns) út á land - eða tjah, 40 mínútna lestarferð frá Búdapest. Það var frábært að komast út úr borginni aðeins, eins og alltaf. Þau eru með tvo hunda og tvo ketti úti hjá sér allan ársins hring, og systir Emese á boga! Ég fékk að prófa í frostinu í gær. Puttarnir duttu næstum því af, en það var ótrúlega gaman að prófa. Hún hrósaði mér líka fyrir að vera fær Bogamaður!
Jæja, Við borðuðum góðan mat og áttum góðar stundir.
Nú er ein og hálf vika eftir af skólanum. Ég þarf að klára verkefnin mín núna og svo hef ég frí í einn mánuð! Hlakka til - að slátra svíni á Þorláksmessu, eyða jólunum með Antal fjölskyldunni - ferðast meira um landið - og jafnvel til nágrannalanda líka!
Svo er bara planið að koma heim eftir einn og hálfan mánuð! Hlakka til að koma heim - en hlakka meira til að komast í frí hér og gera .... allt og ekkert. njóta þess að vera í Ungverjalandi.
Jæja, best að koma sér að verki.
Segíts magadon, Isten is megsegít
Viktor.
No comments:
Post a Comment